Fylgist spennt með

búin að poppa. Sit fyrir framan tölvuna og horfi á skjálftakort Veðurstofunnar. 50% líkur hvað?? Í bloggheimum og á spjallþráðum er fólk 95% visst á því að það fari að gjósa og helst í gærWink

 

Annars kemur jarðfræðinördinn upp í mér á svona stundum, ég leita uppi fréttir af Upptyppingum og ég get ekki sleppt því að fylgjast með þó ég eigi að vera að skrifa lokaritgerð. Ég er algjörlega komin yfir hræðsluna við eldfjöll sem varð til þess að ég grenjaði heilt kvöld í útilegu undir Heklu, 5 ára gömul. Hekla mátti nefnilega ekki gjósa á migCrying Núna segi ég henni að gjósa þegar ég er nógu nálægt til að sjá það. 

 

jæja, búin að koma upp um geðveiki mína fyrir framan alþjóð. Já ég viðurkenni það, ég er jarðfræðinördTounge


mbl.is Helmingslíkur á eldgosi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband